Vorhátíð Vatn og heilsu 2019 !
Vorhátíð Vatn og heilsu 🙂
Þriðjudaginn 23. apríl nk. gerum við okkur glaðan eftirmiðdag og höldum vorhátíð Vatn og heilsu.
Að þessu sinni verður gleðskapurinn í Sundhöll Selfoss og Tryggvaskála.
Við byrjum á Zumba tíma í Sundhöll Selfoss, útilaug kl. 17:30.
Þema kvöldsins er höfum gaman saman!
Í Tryggvaskála gæðum við okkur á :
Sjávarréttasúpu með heimabökuðu brauði, þeyttu smjöri, hummus og tapenade.
Mexikó kjúklingasúpu með nacos, sýrðum rjóma og osti.
Kaffi – te og afmæliskaka.
Verð fyrir manninn kr. 3.900.-
Ýmislegt verður gert til skemmtunar og eru skemmtiatriði frá hópum vel þegin.
Einnig verður keppt um farandbikar Vatn og heilsu og stóru spurningarnar eru í hverju? og hvaða hópur vinnur hann í ár?
Skráning stendur yfir hjá kennurum..
Allir að mæta!
Hlökkum til að sjá ykkur
Kennarar Vatn og heilsu