Vatnsleikfimin hefst mánudaginn 2. september n.k.

Nú styttist í að vetrarstarfið hefjist hjá okkur eftir sumarfrí. Við byrjum að kenna samkvæmt stundatöflu mánudaginn 2. september n.k. Það eru enn laus pláss í einstaka hópa, áhugasamir hafið endilega samband við Sigrúnu með því að annað hvort senda tölvupóst á sigrun@vatnogheilsa.is eða að hringja í síma 7926400.

Við hlökkum til að hitta ykkur 🙂

Kennarar Vatn og heilsu