Vatnsleikfimin hefst aftur 1. september!
Nú styttist sumarfríið og byrjum við aftur með vatnsleikfimi 1. september n.k.
Þeir sem voru hjá okkur í maí eru áfram skráðir hjá okkur nema að þeir hafi látið okkur vita og beðið um annað.
Við bjóðum upp á nýjung í greiðslufyrirkomulagi eða haustannarkort, kynnið ykkur það betur undir hnappnum verðskrá.
Við erum með fjölbreytta hópa í boði, endilega skoðið þá undir hnöppunum hópar og tímatafla.
Skráning er í fullum gangi í síma 7926400 eða sigrun@vatnogheilsa.is.