Entries by Ásdís

Nýjung haustannarkort

Í vetur munum við bjóða upp á tvær áskriftarleiðir, annars vegar haustannarkort og hins vegar stakan mánuð. Haustannarkort þá er greitt fyrir fjóra mánuði (september-desember) með eingreiðslu. 1x í viku 24.000.- 2x í viku 48.000.- 3x í viku 72.000.- Athugið að haustannarkortið á eingöngu við alla fjóra mánuðina. Við munum síðan bjóða upp á vorannarkort […]

Vatnsleikfimin hefst aftur 1. september!

Nú styttist sumarfríið og byrjum við aftur með vatnsleikfimi 1. september n.k. Þeir sem voru hjá okkur í maí eru áfram skráðir hjá okkur nema að þeir hafi látið okkur vita og beðið um annað. Við bjóðum upp á nýjung í greiðslufyrirkomulagi eða haustannarkort, kynnið ykkur það betur undir hnappnum verðskrá. Við erum með fjölbreytta […]

Júní námskeiðið í vatnsleikfimi fellur niður

Eins og lesa má í fréttum þá er allsherjar verkfall skollið á sem þýðir að starfsmenn sundhallarinnar eru fjarri góðu gamni og Sundhöll Selfoss lokuð. Í ljósi þessa höfum við tekið þá ákvörðun að fella alfarið niður fyrirhugað júní námskeið í vatnsleikfimi. Vatnsleikfimin byrjar aftur föstudaginn 1. september samkvæmt stundatöflu, nánar auglýst síðar. Við óskum […]

Verkfall og vatnsleikfimi í júní

Kæru iðkendur sem eru skráðir í vatnsleikfimi hjá Vatn og heilsu í júní athugið! Við ætlum að byrja mánudaginn 5. júní. Þið hafið ekki fengið rukkun inn á heimabankann ykkar þar sem það gæti orðið verkfall og viljum við sjá hvort af námskeiðinu verður áður en við förum að rukka ykkur fyrir það. Verkfallsaðgerðir aðildarfélaga […]

Vatnsleikfimi í maí

Þar sem stefnt er að því að loka sundlauginni 25. maí n.k. vegna viðhalds og þrifa munum við stytta maí mánuð hjá okkur og kenna í þrjár vikur í stað fjögurra. Seinustu tímarnir hjá okkur verða því þriðjudaginn 23. maí n.k. Gjaldið verður 75% af fullu gjaldi. Sjáumst hress 🙂  

Vorhátíð Vatn og heilsu 2023 !

VORHÁTÍÐ 2023 Mæting miðvikudaginn 24. maí 2023 klukkan 16:45 við Sundhöll Selfoss. Fordrykkur Brottför 17:00 Bakarísferð í Fontana Farið niður að vatni, grafið upp hverabrauð og smakkað á nýbökuðu brauðinu. Frábært að hafa meðferðis gott skap og létta lund auk klæðnaðar til örlítillar útiveru. Farmers Bistro á Flúðum Kynning á starfseminni Sælkerahlaðborð Kaffi / te […]

Kennsla fellur niður mánudaginn 19. des.

Kæru iðkendur. Vegna slæmrar veðurspár, ófærðar, kennarar veðurtepptir og aðstæðna í sundlauginni þá sjáum við okkur ekki annað fært en að fella niður alla kennslu í dag, mánudaginn 19. des og morguntímann í fyrramálið, þriðjudaginn 20. des. Okkur þykir þetta miður en sjáumst hress með batnandi veðri Kennarar Vatn og heilsu