Entries by Ásdís

Gönguhópur Vatn og heilsu fer af stað fimmtudaginn 2. sept.

Gönguhópur Vatn og heilsu gengur af stað fimmtudaginn 2. sept. n.k. Við hittumst við Sundhöll Selfoss á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:10 og förum æfingagöngur þaðan. Í hverjum mánuði förum við í eina eða tvær fjallgöngur. Nánari upplýsingar um hópinn má finna undir hópar. Allir velkomnir með okkur, þetta er skemmtileg útivera í góðra vina […]

Breyting á innheimtu fyrir veturinn 2021 til 2022

Breyting á innheimtu hjá Vatn og heilsu fyrir veturinn 2021 til 2022 Frá 1. september 2021 mun krafa berast í heimabanka iðkanda við upphaf hvers mánaðar en ekki í gegnum Valitor eins og undanfarin ár. Iðkendur eru skráðir allan veturinn, frá 1. september til 31. maí ár hvert, eða frá þeim tíma sem þeir skrá […]

Starfsemin byrjar aftur n.k. fimmtudag :)

Samkvæmt heilbriðgisráðherra þá taka nýjar sóttvarnareglur gildi n.k. fimmtudag. Það gleður okkur því mjög að geta tilkynnt að öllu óbreyttu munum við byrja aftur með starfsemi Vatn og heilsu fimmtudaginn 15. apríl samkvæmt stundatöflu. Við hlökkum til að sjá ykkur 🙂 Kennarar Vatn og heilsu

Starfsemi Vatn og heilsu stöðvast fimmtudaginn 25. mars vegna Covid-19

Vegna hertra sóttvarnaaðgerða þá mun starfsemi Vatn og heilsu stöðvast fimmtudaginn 25. mars n.k., þegar nýjar reglur taka gildi. Þessar nýju sóttvarnareglur eiga að vara í þrjár vikur og munum við byrja aftur um leið og við fáum grænt ljós. Við munum kenna alla tíma í dag, miðvikudaginn 24. mars. Eins og áður falla æfingagjöld […]

Starfsemin komin á fulla ferð !

Starfsemi Vatn og heilsu er komin á fulla ferð eftir Covid hlé. Góð mæting er í alla hópa og virkilega gaman að vera á bakkanum og kenna 🙂 Sjáumst hress í næsta tíma – kennarar Vatn og heilsu !

Vatnsleikfimin byrjar aftur 13. janúar n.k.

Við byrjum aftur  samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 13. janúar n.k. 🙂 Minnum á almennar sóttvarnareglur og grímuskyldu í anddyri sundhallar. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur 🙂 Vatnsleikfimikveðja, kennarar Vatn og heilsu

Byrjum aftur á nýju ári !

Kæru iðkendur. Þar sem eindreginn vilji sóttvarnateymis landsins er að við förum okkur hægt í desember og stuðlum þannig að því að við getum átt gleðileg jól með okkar nánustu, þá ætlum við í Vatn og heilsu að fara eftir þeim tilmælum. Núgildandi reglur vara til 12. janúar og við vonum svo sannarlega að við […]

Starfsemin áfram stopp

Heil og sæl. Í ljósi aðstæðna og áframhaldandi sóttvarnaraðgerða verður áfram lokað hjá okkur í Vatn og heilsu. Við munum endurmeta stöðuna um leið og sóttvarnarreglur breytast. Eins og áður hefur komið fram þá munum við ekki innheimta æfingagjöld á meðan á lokun stendur. Bestu kveðjur, kennarar Vatn og heilsu.