Entries by Ásdís

Langar þig að vera með í skemmtilegri leikfimi í vetur!!

Nú er tækifærið að koma og vera með okkur í skemmtilegri leikfimi í vetur. Við eigum nokkur pláss laus í flesta hópa þannig að endilega skoðið hópana hjá okkar og tímatöfluna og sjáið hvort vatnleikfimi er ekki eitthvað sem gæti hentað ykkur. Skráning er hjá beta@vatnogheila.is, s: 8475212, sigrun@vatnogheilsa.is, s: 8657051 og asdis@vatnogheilsa.is, s: 8624915.

Byrjum aftur eftir sumarfrí, mánudaginn 2. september n.k. !

Þá styttist í að við byrjum aftur eftir sólríkt og gott sumarfrí. Mánudaginn 2. september n.k. hefst fjörið samkvæmt tímatöflu. Þið sem voruð hjá okkur í vor og forskráðuð ykkur eruð áfram í ykkar tímum og mætið spræk 2. sept. Þið sem viljið bætast í hópinn hafið samband, það er enn laust í einhverja tíma.

Vorhátíð Vatn og heilsu 2019 !

Vorhátíð Vatn og heilsu 🙂 Þriðjudaginn 23. apríl nk. gerum við okkur glaðan eftirmiðdag og höldum  vorhátíð Vatn og heilsu. Að þessu sinni verður gleðskapurinn í Sundhöll Selfoss og Tryggvaskála. Við byrjum á Zumba tíma í Sundhöll Selfoss, útilaug kl. 17:30. Þema kvöldsins er  höfum gaman saman! Í Tryggvaskála gæðum við okkur á : Sjávarréttasúpu […]

Eigum laus pláss í tíma hjá okkur !

Við bjóðum nýja iðkendur velkomna til okkar. Við eigum laus pláss í alla morguntíma, WaterHIIT kl. 19:05 og WaterFIT kl. 20:00. Einnig er laust í gönguhópinn okkar. Sjá nánar um tímana í tímatöflu. Verið velkomin 🙂

Gleðilegt nýtt ár !

Við hjá Vatn og heilsu óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir góðar samverustundir á liðnu ári. Hlökkum til að vera með ykkur í vatnsleikfimi og í gönguskónum á nýju ári 🙂

Tímar í kringum jól og áramót

Mánudagur 24. desember – tími hjá morgunhópi 1 – sundlaug lokar kl. 12:00. Þriðjudagur 25. desember – frí. Miðvikudagur 26. desember – frí Fimmtudagur 27. desember – morgunhópur 2. Fimmtudagur 27. desember – sameiginlegur tími fyrir alla gigtarhópa kl. 16:15. Föstudagur 28. deember – morgunhópur 3. Mánudagur 31. desember – morgunhópur 1 – sundlaug lokar […]