Innilaugin opnar á morgun, mánudag 12. des.

Kæru iðkendur. Innilaugin verður opnuð mánudaginn, 12. des., við getum því haldið okkar striki og kennt alla tíma. Útisvæðið verður hins vegar ennþá lokað og því ekki hægt að fara í heitapottinn fyrir eða eftir tíma. Sjáumst…

Jólatímar 13. og 14. desember !

Það verður jólagleði hjá okkur í vikunni. Á þriðjudaginn mæta allir gigtarhópar kl. 16:30 í sameiginlegan tíma. Á miðvikudaginn mæta allir aðrir hópar kl. 18:00 í sameiginlegan tíma. Jólagleði, söngur, jólagjöf…

Við byrjum aftur eftir sumarfrí fimmtudaginn 1. sept !

Við byrjum aftur eftir sumarfrí fimmtudaginn 1. september n.k. samkvæmt stundatöflu. Við hlökkum til að hitta ykkur aftur og eiga með ykkur ánægjulegar stundir í lauginni. Vatnsleikfimiskveðja, kennarar Vatn og heilsu

Skráning farin af stað fyrir veturinn 2022-2023

Við erum farnar að skrá í hópana okkar fyrir veturinn. Þið sem voruð á skrá í vor haldið sjálfkrafa áfram en aðrir þurfa að skrá sig að nýju. Við bjóðum nýja iðkendur ávallt velkomna í vatnsleikfimisfjölskylduna okkar.…

Starfsemin fer í sumarfrí !

Kæru iðkendur. Núna þegar langt er liðið á júni langar okkur að óska ykkur áframhaldandi ánægjulegs sumars og vonum að þið hafið það sem best og finnið ykkur góða leið til að næra bæði líkama og sál <3 Við…

Vatnsleikfimi í júni !

Við verðum með nokkra hópa í vatnsleikfimi í júni. Sigrún tekur við skráningum í síma 792 6400. Frábær hreyfing í góðum félagsskap :)

Sundhöllin lokuð vikuna 16.-20. maí n.k.

Þar sem Sundhöll Selfoss verður lokuð dagana 16.-20. maí n.k. þá verður engin kennsla hjá okkur þá vikuna. Við mætum aftur galvösk mánudaginn 23. maí og kennum út maí. Við minnum einnig á að við verðum með sundleikfimi…
,

Vorhátíð Vatn og heilsu 2022!

Vorhátíð Vatn og heilsu 10. maí 2022   17:30 - Rölt um miðbæinn með leiðsögn og Skyrland skoðað og smakkað. 18:30 - Borðhald í Tryggvaskála - skemmtiatriði í ykkar boði - happadrætti - gleði og gaman :)   Matseðill: Kjúklingasúpa Súkkulaðikaka…

Laus pláss bæði í vatnsleikfimi og göngu !

Við eigum laus pláss bæði í vatnsleikfimi og gönguhóp. Frábær hreyfing í góðum félagsskap :) Áhugasamir hafið samband við Sigrúnu í síma 792 6400.

Morguntíminn í fyrramálið (7. feb.) fellur niður!

Sundhöllin verður lokuð í fyrramálið (7. feb.) vegna slæms veðurútlits, við þurfum því að fella niður morguntímann. Við gerum ráð fyrir að kenna kvöldtímana samkvæmt stundatöflu. Kveðja, kennarar Vatn og heilsu